18.04.1923
Neðri deild: 45. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (786)

1. mál, fjárlög 1924

Hákon Kristófersson:

Úr því að hv. 1. þm. N.-M. (ÞorstJ) fór að leiða þennan asna inn í herbúðirnar, verð jeg að geta þess um fundargerðina frá 20. mars, að hann hefir skrifað hana sjálfur, og ef þetta stendur þar ekki, þá er það aðeins af því, að hann hefir slept því. En athugasemd mín var viðvíkjandi Bíldudal og Patreksfirði.