08.04.1924
Neðri deild: 45. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)

56. mál, atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar við alþingiskosningar

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):

Hv. 4. þm. Reykv. (MJ) hefði getað sparað sjer það að standa upp, því hann sagði ekki eitt orð, sem ekki stendur í nál. hans. Jeg get eins látið mjer nægja að skírskota til nál. meiri hl. Vil aðeins bæta því við, að jeg vænti, að hv. deild taki frv. vel og samþykki það.