28.04.1924
Efri deild: 56. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1923 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

61. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Björn Kristjánsson:

Eins og háttv. þdm. mun eflaust kunnugt, er jeg ekki ánægður með frv. það, er hjer liggur fyrir. Ætlaði jeg að koma með brtt. við það, en entist ekki tími til þess, af því að jeg ætlaði að bera þær undir allshn. Er það því ósk mín til hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá nú, svo jeg fái tíma til að bera till. undir hv. allshn.