24.03.1924
Efri deild: 27. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í C-deild Alþingistíðinda. (2453)

16. mál, brúargerðir

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Þetta frv. er að mestu leyti bein afleiðing af frv. um vegagerð, sem hv. deild hefir haft til meðferðar, og fer það í líka átt. Allshn. hefir athugað frv. ítarlega, og leggur til í einu hljóði, að það verði samþykt hjer í deildinni. En eins og hagur ríkissjóðs er nú, leiðir af sjálfu sjer, að fara verður mjög gætilega í sakirnar um framkvæmd þessara laga.