04.04.1925
Neðri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)
79. mál, selaskot á Breiðafirði og uppidráp
Frsm. (Hákon Kristófersson):
Jeg vil aðeins geta þess, að frv. hefir tekið örlitlum breytingum í hv. Ed. Hefir landbn. Nd. fallist á þær og telur þær vera til bóta. Nefndin leggur því til, að háttv. deild samþykki frv. eins og það liggur fyrir.