18.04.1925
Efri deild: 55. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (2410)

51. mál, lokunartími sölubúða

Frsm. meirihl. (Eggert Pálsson):

Mjer finst mál þetta ekki svo mikilsvert, að jeg álíti, að eyða beri fje þingsins og tíma til að ræða það frekar. Og þó hv. 5. landsk. (JJ) þykist hafa hrakið allar ástæður mínar, þá geri jeg ráð fyrir, að sú skoðun okkar sje gagnkvæm. — Leyfi jeg mjer að óska, að hægt verði strax að greiða atkv. um málið.