19.03.1925
Neðri deild: 37. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2508)

33. mál, lærði skólinn

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þar sem engar brtt. hafa komið fram og hæstv. forsrh. (JM) hefir látið þess getið, að hann æski ekki eftir að miklar umr. verði um málið fyrri en við 3. umr., þá skal jeg ekki verða til þess að eyða tíma þingsins að óþörfu. Vil jeg því f. h. nefndarinnar taka rökstuddu dagskrána aftur til 3. umr., þó mjer væri persónulega ekki á móti skapi, að frv. væri felt strax.