07.05.1925
Efri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (908)

9. mál, vatnsorkusérleyfi

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hefi ekki neitt að segja um málið eins og það liggur fyrir nú. Skal jeg aðeins þakka hv. allshn. fyrir fljóta og góða afgreiðslu á því. Nær þakklæti þetta einnig til hv. 5. landsk. (JJ) sem eins nefndarmanns, því. enn hefir hann ekki gert neinn ágreining. En fari svo, að tillaga hans verði óaðgengileg, get jeg, ef mjer sýnist, tekið þakklætið til hans aftur við 3. umr. En nú sem stendur á hann 1/3 af því.