29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (1345)

80. mál, veiting Sveinbirni Högnasyni embætti á Íslandi

Forsætisráðherra (JM):

Jeg vil aðeins mæla með því, að þetta litla mál fái fljótan gang gegnum þessa hv. deild, svo því geti sem fyrst orðið lokið. Jeg býst ekki við því, að hv. þm. hafi neitt við það að athuga. Jeg tel sjálfsagt að veita undanþágu í svona almennri fræðigrein eins og guðfræði. Jeg býst sem sagt ekki við því, að málið sæti mótmælum; svo var a. m. k. ekki í Nd. og vona jeg, að eins verði hjer.