05.05.1926
Neðri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1336 í C-deild Alþingistíðinda. (2660)

81. mál, Landsbanki Íslands

Halldór Stefánsson:

Jeg hefi hugsað mjer að bera fram brtt. við þetta frv. og þætti mjer því æskilegt, að umr. yrði ekki lokið í kvöld. Það, sem menn vilja segja alment um málið, mætti taka fyrir nú og fresta svo umr. Eins er um hin málin. Það hefði mátt ljúka af því, sem menn höfðu að segja alment um þau og tala um þær tillögur, sem fram eru komnar og fresta svo. Á þessum grundvelli vildi jeg, að þetta mál kæmi til umr. nú.