10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í C-deild Alþingistíðinda. (2722)

81. mál, Landsbanki Íslands

Sigurður Eggerz:

Jeg gleðst yfir þeim orðum hæstv. forseta, að hann vilji taka þetta mál af dagskrá, því að mjer finst það ekki geta komið til nokkurra mála að ráða þessu stærsta máli þjóðarinnar til lykta á þeim stutta tíma, sem eftir er af þingtímanum.