06.02.1926
Sameinað þing: 1. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (3450)

Rannsókn kjörbrjefa

Frsm. 3. kjördeildar (KlJ):

Þriðja kjördeild hefir haft til meðferðar kjörbrjef Ágústs Helgasonar. Hafði hún fyrir sjer útdrátt úr gerðabók landskjörstjórnarinnar í Reykjavík, og þar er því lýst yfir, að Ágúst Helgason sje varamaður Sigurðar Jónssonar. Hefir kjördeildin ekkert við þetta að athuga og leggur til, að kosningin verði samþykt.