21.03.1927
Neðri deild: 35. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

48. mál, notkun bifreiða

Frsm. (Hjeðinn Valdimarsson):

Þessi litla brtt., sem nefndin kemur fram með, er komin fram eftir ósk lögreglustjórans í Reykjavík, til þess að hann haldi áfram heimild til að láta skoða bifreiðar, þegar ekki næst til skoðunarmanna, og getur þess þurft í lögreglumálum. Meira hefir nefndin ekki við frv. að athuga.