03.03.1928
Efri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2523 í B-deild Alþingistíðinda. (2411)
17. mál, gin- og klaufaveiki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Svarið við þessari spurningu hv. frsm. minni hl. liggur hjer einmitt fyrir. Að stj., eftir samráði við Búnaðarfjelag Íslands og dýralækninn hjer í Reykjavík, lagði þetta frv. fram, er af þeirri ástæðu, að hún áleit sig ekki hafa eins góða aðstoð í lögum og þörf væri á.