11.02.1928
Neðri deild: 20. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (2675)

35. mál, lokunartími sölubúða

Hákon Kristófersson:

Mjer er ómögulegt að sjá, hverja ástæðu hv. form. allshn. getur haft til þess að vera á móti því, að nefndin fái frv. til meðferðar. Jeg held, að það væri t. d. mjög fýsilegt að fá að vita, hvaða menn það eru, sem óska frv. framgangs, eða hvort nokkrum er þægð í því, að það verði að lögum.