24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka

Fjmrh. (Magnús Kristjánsson):

Jeg vísa til þess, er hjer er fram komið um hin önnur frv., sem á undan eru gengin (fjáraukalagafrv. fyrir árið 1926 og frv. um samþykt á landsreikningnum 1926). Gildir alt hið sama um þetta, sem þegar hefir verið tekið fram um hin. Legg jeg til, að því verði einnig vísað til fjhn.