16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2561 í B-deild Alþingistíðinda. (1241)

77. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Gunnar Sigurðsson:

Við erum hjer með smávægilega brtt., þm. Rang., sem ekki er fram komin enn. Er þar um smáatriði að ræða, það, að fá línuna frá Geldingalæk framlengda út á Land. Jeg geri ráð fyrir, að þetta verði samþ. og get því vel fallist á till. frsm., að taka hana aftur til 3. umr.