27.03.1929
Efri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2588 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)

27. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði

Björn Kristjánsson:

Jeg er hv. allshn. þakklátur fyrir undirtektir hennar við þetta frv. og þær leiðrjettingar, sem hún hefir á því gert, enda eru þær tvímælalaust til bóta. Sjálfsagt er að bæta orðinu „atvinnuvegi“ inn í 18. gr. Og um viðbótargreinina skal jeg taka það fram, að jeg vakti máls á því við 1. umr., að henni þyrfti að bæta inn í frv. En jeg hefi fulla ástæðu til að vera ánægður með afgr. frv. hingað til og vænti þess, að hv. deild vísi því nú til 3. umr.