06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

19. mál, landsreikningar 1927

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg neita því, að þessar 9000 kr. hafi komið til greina fyrir landsreikninginn 1925. Hv. 1. þm. Reykv. man ef til vill, hvernig þessi upphæð varð til, en jeg legg ekkert upp úr því, sem Manscher segir um hana. Leyfi jeg mjer að skora á hæstv. stj. að hlutast til um, að þessi skuld verði innheimt., að svo miklu leyti sem unt er.