23.03.1929
Neðri deild: 30. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

25. mál, tannlækningar

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg vil aðeins taka það fram sem frsm. allshn., að breyt. þær, er efri deild hefir gert á þessu frv., eru allar orðabreyt., en engin efnisbreyt. N. sjer því ekki ástæðu til þess að amast við þeim, enda þótt hún telji þær til lítilla bóta, og óskar því eftir, að frv. verði samþ. eins og það nú liggur fyrir.