22.02.1929
Neðri deild: 5. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (247)

10. mál, útfutningsgjald af síld o.fl.

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Um þetta frv. get jeg verið fáorður. Það er flutt samkv. 23. gr. stjskr. og á að skera úr um efni, sem hefir verið vafaatriði. Þetta mun vera síðasta frv., sem Magnús heitinn Kristjánsson fjmrh. fór höndum um. Jeg leyfi mjer að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn.