06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

106. mál, kynbætur hesta

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil bæta við það, sem hv. 1. þm. N.-M. og hv. þm. V.-Sk. sögðu um þetta mál, því, að eftir því sem jeg best veit, þá er frv. þetta samið af ráðunaut Búnaðarfjelags Íslands í hrossaræktinni. Mjer finst því sjálfsagt, þar sem frv. er komið frá þeim manni, sem mesta reynslu hefir fengið í þessum efnum, að samþ. það.