12.03.1930
Neðri deild: 51. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)

11. mál, yfirsetukvennalög

Fjmrh. (Einar Árnason):

Þetta frv. er komið hingað frá hv. Ed. eftir að hafa gengið í gegnum hana óbreytt eins og það var lagt fyrir þá hv. deild. Ég býst ekki við, að nein þörf sé að skýra þetta frv. hér í þessari hv. deild, því það er svo kunnugt frá fyrri árum. Ég vil því aðeins leggja það til, að því verði vísað til fjhn.