14.02.1930
Neðri deild: 25. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1643 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

116. mál, ábyrgð rekstrarláns til útgerðar

Ólafur Thors:

Ég leyfi mér að fara fram á það, að næsti fundur verði ekki fyrr en kl. 5½, í því trausti, að þá geti málið gengið fram með afbrigðum. Ég ætla fyrir mitt leyti að nota þann tíma til umhugsunar, hvort ég geti ekki stuðlað að því, að þá verði veitt afbrigði. En verði fundur settur nú þegar, þá myndi ég fyrir mitt leyti ekki geta veitt afbrigði.