26.02.1930
Neðri deild: 37. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2548)

42. mál, rafmagnsdeild við vélstjórnaskólann

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það er hvorttveggja, að frv. þessu fylgir ítarleg grg. og að ég gerði allítarlega grein fyrir því við 1. umr., enda hefir menntmn. lagt til, að það væri samþ. óbreytt. Meðan ekki koma fram brtt. eða mótmæli, sé ég því ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv.