14.02.1930
Neðri deild: 24. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2055 í B-deild Alþingistíðinda. (2727)

64. mál, vigt á síld

Sigurjón Á. Ólafsson:

Mál þetta er komið frá hv. Ed. og var hér fyrir þessari hv. d. á síðasta þingi. Ég skal spara mikið mál með þessu frv.; þess gerist ekki þörf. Hv. Ed. hefir mælt með frv. óbreyttu, og vona ég, að þessi hv. d. sjái sér einnig fært að fylgja málinu fram. Óska ég, að því verði vísað til 2. umr. og sjútvn.