03.02.1930
Neðri deild: 13. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (383)

67. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka, hlutafjárauki o. fl

Bjarni Ásgeirsson:

Sumt af því, sem hv. 2. þm. G.-K. sagði um viðskipti Landsbankans og Íslandsbanka, var þess eðlis, að fullkomin ástæða væri til þess að skýra það nánar, en vegna þess að ég álít lífsnauðsyn, að við komumst sem fyrst að einhverri niðurstöðu í þessu máli, ætla ég að geyma til 2. umr. að gefa ýmsar skýringar, sem ég get gefið, þar sem ég á sæti í bankaráði Landsbankans.