14.02.1931
Efri deild: 1. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (388)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (GÓ):

Ég vil leyfa mér að þakka hv. dm. fyrir það traust, sem þeir hafa sýnt mér með þessari kosningu, og vænti ég þess jafnframt, að góð samvinna verði með mér og hv. dm. sem að undanförnu. Ennfremur vil ég bjóða velkomna hér til setu hina nýju fulltrúa, sem ekki hafa setið hér áður. Sú er og ósk mín, að störf þessarar deildar megi verði landi og lýð til blessunar, nú sem áður.