29.07.1931
Neðri deild: 15. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í D-deild Alþingistíðinda. (1703)

75. mál, jarðeignaskýrslur

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég felli mig vel við það, að málinu sé vísað til n. En viðvíkjandi till. hv. 1. þm. S.-M. vil ég aðeins segja það, að á þann hátt yrði verkið miklu kostnaðarmeira en ella. Ef í jarðamatsbókina ætti að koma fyrir öllum þeim upplýsingum, sem við teljum, að vera eigi í þessari skýrslu, þá yrði kostnaðurinn miklu meiri en þörf er á að verði. Annars get ég vel sætt mig við það, að málinu verði vísað til landbn., og læt því máli mínu lokið.