22.07.1931
Efri deild: 7. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (2373)

38. mál, vegalög

Flm. (Halldór Steinsson):

Ég get verið fáorður um þetta frv. nú við þessa umr. Eins og tekið er fram í grg., hefir frv. þetta legið fyrir áður: Till. um Snæfellsnesbraut fyrir tveimur undanförnum þingum, og till. um Eyrarsveitarveg fyrir síðasta þingi. Hefi ég því áður gert glögga grein fyrir nauðsyn þess, að vegir þessir séu teknir í þjóðvegatölu, og tel því enga þörf á að gera það nú. Vil ég svo aðeins óska þess, að frv. gangi til 2. umr og hv. samgmn.