14.08.1931
Efri deild: 29. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (GÓ):

Ég dró það að standa upp, af því að ég bjóst við, að formenn nefndanna létu til sín heyra. Ég vona, að þær hafi sínar ástæður. Það hafa komið mörg frv. frá hv. 2. landsk. og ekki langt síðan sum fóru til n. En ég hefi hvatt nefndirnar til að flýta afgreiðslu þeirra.