24.08.1931
Efri deild: 42. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)

Starfslok deilda

forseti (GÓ):

Störfum þessarar hv. d. er nú lokið að þessu sinni, aðeins eftir að slíta þessum fundi.

Hygg ég, að þetta þing verði talið eitt af hinum afkastameiri, er tekið er tillit til þess, hve stuttan tíma það hefir staðið yfir.

Ég þakka hv. dm. góða samvinnu við mig á þessu þingi sem og á öðrum undanförnum þingum. Árna svo öllum hv. þm. heilla og vænti þess, að vér megum allir heilir hittast á næsta þingi.

Gifta fylgi jafnan störfum efri deildar Alþingis.