23.05.1932
Neðri deild: 81. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2394 í B-deild Alþingistíðinda. (11458)

Afgreiðsla þingmála

Bergur Jónsson:

F. h. allshn. vil ég lýsa því yfir, að n. er búin að afhenda álit um þetta mál. Frv. kom ekki fyrir n. fyrr en um miðjan þennan mánuð, og fundartími n. er á sama tíma og þingfundir standa oft yfir. Af þeim sökum hefir alls. þn. átt örðugt með að starfa að afgreiðslu mála.