19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2922)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Einar Arnórsson:

Hv. þm. Mýr. hefir nú upplýst, hvað ég átti við, þegar ég minnti hann á þennan 50 kr. bitling hans, og skal ég aðeins bæta því við það, sem ég sagði áður, að það stækkar ekki hv. þm. Mýr. í mínum augum, þó að hann hafi látið einhverja aðra menn hafa sig eða jafnvel kúga sig til þess að fremja þetta ógeðslega verk.