11.05.1932
Neðri deild: 72. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í C-deild Alþingistíðinda. (3307)

243. mál, síldarmat

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Það er í stuttu máli frá því að segja, að Ed. hefir breytt þessu frv. og fært það í sitt upprunalega form. Sjútvn. þessarar hv. d. leggur aftur á móti til, að frv. verði fært aftur í sama horf og það var í, þegar d. skilaði því frá sér síðast. Við sjáum ekki neina ástæðu til þess, að Ed. geti ekki fallizt á þær skynsamlegu till., sem hér voru samþ. Hv. Ed. hefir viljað halda í gamlar leifar frá síldareinkasölufyrirkomulaginu, sem síður á við, þegar útflutningur þessarar voru er orðinn frjáls.