24.02.1932
Neðri deild: 9. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (3459)
32. mál, ríkisútgáfa skólabóka
Frsm. ( Vilmundur Jónsson):
Þetta frv. er flutt hér í þriðja sinn, og vænta flm. þess, að það geti nú orðið í síðasta sinn. Þörfin á að bæta úr því skipulagsleysi, sem verið hefir um útgáfu skólabóka, er hin sama og áður, og jafnvel brynni, vegna þess hve illa lætur nú í ári.
Annars sé ég ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið, en geri að till. minni, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. menntmn. til góðrar fyrirgreiðslu.