03.05.1932
Neðri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (684)

9. mál, brúargerðir

Hannes Jónsson:

Mér sýnist ráð að láta sitja við það, sem hv. Ed. hefir gert. þeir, sem vilja styðja að framkvæmd þessa máls, munu áreiðanlega sætta sig við þá afgreiðslu. Ef nú á enn að fara að breyta frv., fer það í Sþ., og er óséð um afdrif þess þar. Ég mun því greiða atkv. með frv. óbreyttu, og á móti öllum brtt., og vona, að sem flestir hv. þdm. geri það sama.