17.02.1932
Efri deild: 3. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (688)

10. mál, Brunabótafélag Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson): Þetta frv. var á ferðinni á þinginu 19:30 og 1931. Hygg ég, að stafað hafi af tímaleysi en ekki andstöðu, að það náði á hvorugu þinginu samþykki. Á frv. hafa nú verið gerðar smábreyt. í samráði við stjórn sjóðsins. Vona ég, að eigi verði um þær ágreiningur og að málið nái afgreiðslu á þessu þingi. Leyfi ég mér að leggja til, að frv. verði að umr. lokinni vísað til fjhn.