22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

10. mál, Brunabótafélag Íslands

Magnús Guðmundsson:

Ég man ekki til þess, að þessum sjóðum sé ráðstafað áður í lögum, og því er það ekki gefið að fyrra bragði, að þá beri að meðhöndla sem innstæðufé sveita, sé ég ekki hvað getur verið á móti því að samþ. það, sem öllum kemur saman um, að eigi að vera. Þetta stendur ekki beint í frv., það hefir hv. frsm. viðurkennt, og er því undarlegt, ef ekki má skjóta því þar inn.