24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2904 í B-deild Alþingistíðinda. (174)
Breski samningurinn
fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég lýsi yfir því í heyranda hljóði, að íslenzk-brezki verzlunarsamningurinn verður birtur í dag í Parlamentinu. Birting samningsins er jafnframt heimil hér á landi. Hinsvegar verður samningurinn ekki prentaður sem þskj. fyrr en íslenzki textinn kemur út til landsins með næsta skipi. Þýðing af enska textanum er í höndum þm. og hefir verið afhent blaðamönnum, og birting er þess vegna heimil á efni samningsins, þó að hið gildandi orðalag komi ekki fyrr en síðar.