02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (3295)
168. mál, viðbótar- tekju- og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson):
N. hefir ekki haft langan tíma til að athuga málið, en meiri hl. hefir þó komizt að þeirri niðurstöðu, að ef frv. ætti að ná framgangi á þessu þingi, þá dygði ekki að gera á því breytingar, og leggur því til, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.