13.05.1933
Neðri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2566 í B-deild Alþingistíðinda. (4134)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Lárus Helgason:

Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, ekki þó af því, að ég sé andvígur frv. Það á að mörgu leyti rétt á sér. En þó er ég ekki að öllu leyti ánægður með það, og kem ég e. t. v. með brtt. við 3. umr. Mun ég þá taka málið til nánari athugunar.