18.03.1933
Neðri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

2. mál, fjáraukalög 1931

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég sé ekki ástæðu til að segja annað um afgreiðslu hv. n. á þessu máli en að álit hennar er mjög skýrt og sýnir greinilega niðurstöður ársins 1931. Eina leiðréttingin, sem máli skiptir, er sú, að fella niður aukafjárveitingu fyrir greiðslu, sem heimild var fyrir í fjárlögum. Hitt eru aðeins smáleiðréttingar. Vil ég svo einungis þakka n. fyrir skýra og góða afgreiðslu á frv.