22.02.1933
Efri deild: 7. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í C-deild Alþingistíðinda. (4219)

20. mál, gæslu landhelginnar og fl.

Jón Baldvinsson:

Ég tek trúanlegt það, sem hæstv. ráðh. segir, að það sé ekki hægt að svara því nákvæmlega, hvernig hagur landhelgissjóðs er, af því að reikningar hans fyrir síðastl. ár séu ekki að fullu uppgerðir. En þegar hæstv. ráðh. er að vísa í margra ára gamlan LR. til upplýsinga um fjárreiður landhelgissjóðs, þá tel ég það sama og að svara út í hött. (Dómsmrh.: Sá LR er ekki nema tveggja ára). LR fyrir árið 1931, sem ef til vill kemur næstu daga, er ekki orðinn kunnur þingmönnum.