07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (636)

26. mál, jarðrask við sjó í kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum

Pétur Ottesen:

Við 2. umr. frv. þessa hér í d. hreyfði ég nokkrum aths. við það, sem jafnframt fólust í tilmæli frá mér um, að hv. allshn. tæki til athugunar. En nú sé ég, að hún hefir ekki haft ástæðu til þess að gera þetta. Hinsvegar hefir mér ekki unnizt tími til þess að koma fram með brtt. Leyfi ég mér því að beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann taki mál þetta út af dagskrá að þessu sinni.