27.04.1933
Efri deild: 57. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

5. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það liggur í hlutarins eðli, að ég get ekki stutt brtt. hv. 2. landsk. Þessar upphæðir muna of miklu fyrir ríkissjóðinn til þess að hægt sé að sleppa þeim. Ég held því fast við það, sem ég sagði um þetta atriði við 2. umr. Hinar brtt., sem hér liggja fyrir, eru svo smáar, að ég sé ekki ástæðu til þess að gera þær að umtalsefni.