20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (117)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Jónas Jónsson:

Ég get að mestu tekið undir það, sem hv. 3. landsk. sagði áðan. Ég greiddi ekki atkv. um stjskrbreyt. í fyrra, hvorki með eða móti. Ekki á móti henni vegna þess, að sá flokkur, sem ég er í, afréð að vera með henni. En af því að ég er óánægður með undirbúning málsins, mun ég ekki greiða þessari stjskrbreyt. atkv. mitt, hvorki nú eða síðar.