16.11.1933
Sameinað þing: 3. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í D-deild Alþingistíðinda. (1806)

34. mál, vantraust á dómsmálaráðherra

Forseti (JBald):

Mér hefir ekkert verið tilkynnt um að, hvort hæstv. ríkisstj. hefir sagt af sér eða ekki, og þegar ég ákvað í gærkveldi að taka þetta mál á dagskrá í dag, var það því á engan hátt gert með það fyrir augum að fara að stofna til skrípaleiks hér á Alþingi, eins og hv. 4. þm. Reykv. talar um. Þar sem hæstv. stj. hefir og enn enga tilkynningu um þetta gefið, tel ég sjálfsagt, að Alþingi taki ákvörðun um þetta mál á venjulegan hátt. Ég mun þó að sjálfsögðu verða við þeirri ósk hv. 3. þm. Reykv. að bera það undir þingið, hvort hafa skuli eina eða tvær umr. um till.