28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)

6. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og nál. á þskj. 590 ber með sér, leggur fjhn. til, að frv. verði samþ. með lítilli leiðréttingu, og er það einungis sú orðabreyt., að fyrir „átsúkkulaði“ komi „súkkulaði“. Hv. 1. þm. Reykv. hefir skrifað undir nál. með fyrirvara, eins og menn sjá, og mun hann sennilega gera grein fyrir honum.