01.10.1934
Sameinað þing: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (16)
Kosning forseta
Kosning forseta.
Aldursforseti gekkst fyrir kosningu forseta sameinaðs þings. Kosningu hlaut
Jón Baldvinsson, 4. landsk. þm., með 26 atkv. Magnús Guðmundsson fékk 20 atkv. og Magnús Torfason 2 atkv.
Hinn kjörni forseti gekk þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Lét hann fyrst fara fram kosningu varaforseta Sþ. Kosningu hlaut
Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.,
með 26 atkv. Magnús Jónsson fékk 20 atkv., en 2 seðlar voru auðir.